Blogg
Djók...
Eða kannski jú. Það var ofsalega gaman á Ítalíu, fullt af sól, sandi og bjór. Við skoðuðum líka alveg slatta af dóti, þar á meðal hina týndu borg Pompei, og síðan fórum við á topp eldfjallsins Vesúvíus og sáum ofaní gíginn, sem var mjög fróðlegt og skemmtilegt. Annars var þetta mest bara slökun og gaman að hitta Kolbrúnu og Kiko en það er alltaf sama sagan hjá þeim, alveg bannað að borga fyrir sjálfan sig þegar maður fer út að borða (s.s. þau borguðu alltaf reikninginn, mjög hentugt).
Ítalía er svo gott sem búið að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu eftir ótrúlega solid byrjun á mótinu.
Svo erum við ennþá að leita okkur að íbúð, en stefnum ótrauð á að flytja í lok mánaðarins, hvort sem Elín verður farin heim til Íslands eða ekki.
Svo erum við í svakalegu sjokki ennþá eftir skjálftana um daginn, og þökkum guði fyrir að enginn hafi slasast eða misst útlimi. Það hefði verið svakalegt.
Luca Toni
9 comments:
Velkomin heim af ströndinni, ætla mér að sjá Pompei næst þegar Muriel verður sótt heim!! Endilega henda inn myndum af týndu borginni og sólheimaglottum ;)
Hver verður bráðum stór??
miss u strákur og gangi ykkur vel að finna íbúð..
Tinnalingur
það var sko geggjað gaman með þér í fríi ástin mín :)
eml
ég veit! bloggaðu meðan þú ert ennþá smá veikur
kjötbollan
KOMMENT ? Djók..komdu nú með eitt STYKKI sögu með myndum af nýja hangoutinu ;)
Miss you og góða ferð til islandos!
T to the E
Are you done with this blogin'?
Are you done with this blogin'?
Hey, you, Hip-Hop Anonymous...
Are YOU done with this blogin?
YES are you finished blogin' joggin' ore hip hip hopin'
Good brief and this mail helped me alot in my college assignement. Gratefulness you seeking your information.
Post a Comment